Jæja fallega fólk, á ég að
segja ykkur frá dimmiteringunni ógurlegu??? 
Oki here it
goes...
Þetta byrjaði þannig að ég
vaknaði kl.6 og fór í sturtu og fann til búninginn og svo var
ferðinni heitið að skutla Atla í vinnunna og svo skutlaði mamma mér
í partý til Gunna... strákurinn átti afmæli þannig að mamma hans
var með kökur og kræsingar handa okkur geggjað góð skilöru... jamm
svo var bara skellt í sig og nokkrar myndir teknar.

Rétt fyrir kl.10 var haldið
upp í skóla þar sem að við sýndum smá stuttmynd og verðlaunuðum
nokkra vel valda kennara... svo var morgunmatur með kennurunum sem
var ekkert smá flott hlaðborð en ég lét það eiga sig... og
spjallaði bara við kennarana... 

Svo röltum við niður í bæ,
með viðkomu í Hókus Pókus því að sumir höfðu gleymt sverðum og
leppum heima svo að það var fjárfest í svoleiðis...
en við
enduðum semsagt niðri á Austurvelli og voru þar nokkrir skólar, það
var alveg geggjað að sjá alla þessa krakka bleeekaða... en já ég
hitti hana Ríkey sem að er að vinna með mér en hennar bekkur var
með GREASE þema sem var geggjað kúl,
og spjallaði ég smá við
hana... við fengum okkur ís en einhverra hluta vegna þá týndi ég
ísnum mínum
eða málið var þannig að ég þurfti eikkað að
laga byssuna mína og bað Gunna um að halda á ísnum fyrir mig, en
hann labbaði bara í burtu og var geggjað ánægður með að vera allt í
einu kominn með ís og var bara að gæða sér á honum ásamt mörgum
fleirum, þannig að þegar ég loksins fann hann þá var ísinn búinn
... en margir mjög sáttir með að hafa fengið
ís 
en já það var miiiikið drukkið og mikið gaman.
Við vorum á Austurvelli til kl.17 ca. Og þá var nú bara hringt í
hana múttu og hún beðin um að koma að sækja mig.


Svo fór ég heim og snæddi
pitsu með múttu og svo var farið í sturtu og gert sig reddi fyrir
kvöldið... Binni skutlaði mér í matinn um kl.18:30 og þar sem ég
var nokkuð íðí þá ákvað ég að vera ekkert að taka með mér meira
áfengi skynsöm stúlka 
. En það skrítna gerðist að þegar
ég var komin í matinn um sjöleitið þá var runnið af mér 

...
þannig að ég var bara edrú mestallt kvöldið nema það að það voru
allir að gefa mér áfengi þannig að ég var bara létt það sem eftir
var kvöldsins... vá þetta var svo klikkað skemmtilegur dagur... en
eftir matinn röltum við á Ölver og var tekið karokí á þetta sem að
var alveg geggjað 
... en svo fórum við öll í sitthvora áttina
þ.e.a.s. allir fóru heim nema ég og Eydís við vorum sko ekkert að
fara að hætta þessu djammi þannig að við skröltum niður í bæ og
fórum á Hverfis og Pravda en svo lá leiðin heim þar sem að það var
ekkert að gerast í bænum og lítið af fólki,
þannig að ég
hringdi bara í Binnann minn og hann kom að sækja mig um þrjúleitið.

Svo vaknaði ég kl.7 á
laugardagsmorgun vegna þess að Diego (hundurinn okkar) var alveg að
missa sig því að morgunblaðið hafði komið og hann ætlaði aldrei að
hætta að gelta
þannig að ég fór upp og tók blaðið og skreið
svo aftur upp í rúm og vaknaði kl.14 alveg eldhress... mér var
farið að kvíða fyrir því að vakna því að ég var svo hrædd um að
verða þunn
en ég slapp alveg við það sem betur fer thíhíhí ég
hefði sko ekki viljað vera hausinn á nokkrum þarna daginn eftir
úfffff 

En ég held að ég hætti þessu
rausi núna, þetta er orðið svolítið löng færsla. En vonandi
skemmtileg thíhíhí 

-Heiða-